Kassettuskúlptúr

Hvað á að gera við allar gömlu kassetturnar? Hér er dæmi um verkefni sem gaman er að vinna með börnum...

 

DSC02187

 

Efni:

  • Tréplatti (mdf eða krossviður)
  • Sandpappír 
  • Málning
  • Kassettur
  • Málning
  • Blöð (um að gera að nýta blöð sem búið er að ljósrita á öðru megin)
  • Lím (allt í lagi að nota trélím)

Áhöld:

  • Málning 
  • Penslar
  • Blýantur
  • Skæri

Aðferð: 

  1. Kantar og horn tréplatta rúnað af með sandpappír 
  2. Gat borað svo hægt sé að hengja myndina upp 
  3. Platti málaður
  4. Útlínur eða skuggamynd dregin upp á blað og klippt út - lagt yfir tréplatta og útlínur teiknaðar á hann
  5. Kassetta límd neðst á tréplattan, borðinn dreginn út og límdur yfir blýantsstrikin. Gott að nota eyrnapinna, tannstöngul eða mjóan pensil til að bera trélím á plattann

Sjá fleiri myndir: Kassettuskúlptúr

Góða skemmtun :-) kveðja, Frú Endurvinnsla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband